Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Fáir bera meiri ábyrgð á stöðu Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar [ESH], en Lúðvík Geirsson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður stjórnar lífeyrissjóðsins en núverandi þingmaður Samfylkingarinnar. Heildarskuldbindingar sjóðsins eru langt umfram eignir eða um 78%. Allt á ábyrgð skattgreiðenda í Hafnarfirði. Í lok árs 2009 vantaði yfir 8,7 milljarða króna til sjóðsins.
Lúðvík Geirsson, sem taldi rétt að halda ákærunni á Geir H. Haarde til streitu, vill lítið kannast við ábyrgð sína á stöðu lífeyrissjóðsins. Hafnfirskir smáfuglar benda á að í æviágripi á vef Alþingis nefnir Lúðvík ekki að hann hafi verið formaður stjórnar ESH. En hann telur rétt að halda til haga að hann hafi verið formaður æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins 1978, formaður bæjarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði 1986-1994 og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, svo dæmi séu tekin. Smáfuglarnir halda því fram að maður sem telur upp formennsu í æskulýðsnefnd stjórnmálaflokks, sem var lagður niður, myndi örugglega telja það sér til tekna að hafa veitt stórum lífeyrissjóði forystu - a.m.k. ef allt væri með felldu. En Lúðvík vil grafa yfir fortíðina og hlaupa frá ábyrgðinni.
Fréttatíminn var með stutta frétt um ESH síðasta föstudag. Þar voru dregnar fram alvarlegar athugasemdir sem Fjármálaeftirlitið gerði síðasta haust við starfsemi og stjórnunarhætti sjóðsins. Smáfuglarnir telja rétt að birta þann lista:
A. Sjóðurinn setti sér ekki starfsreglur fyrir framkvæmdastjóra og stjórnarmenn undirrituðu ekki starfsreglur stjórnar. Engar reglur og verkferlar um fjárfestingar sjóðsins.
B. Samþykktir sjóðsins höfðu ekki verið uppfærðar frá aldamótum.
C. Verklagsreglum um verðbréfaviðskipti var ekki fylgt eftir.
D. Iðgjaldakerfi hélt ekki nægilega vel utan um upplýsingar sjóðsfélaga.
E. Útreikningar vegna lífeyrisúrskurða voru ekki yfirfarnir nema upp hafi komið álitamál.
F. Villur voru látnar standa óleiðréttar árum saman hjá sjóðnum.
G. Misræmi var í útreikningi á raunávöxtun Eftirlaunasjóðsins og útreikningi FME.
H. FME gerði athugasemd við utanumhald um fjárfestingar sjóðsins.
I. Fjárhagsbókhald sjóðsins var ekki fært með reglubundnum hætti.
J. Skortur á yfirsýn framkvæmdastjóra yfir kerfið og utanumhald um fjárfestingar.
K. Misbrestur var á því að allar upplýsingar um lánveitingar væru bókfærðar í fundargerð stjórnar.
Smáfuglarnir hafa ákveðinn skilning á því að Lúðvík vilji gleyma því að hann hafi verið formaður stjórnar ESH. Spurningin er hvort Hafnfirðingar vilji einnig gleyma. Það verður a.m.k. erfitt þegar þeir frá reikninginn.
Verndar lögregla ekki eignarrétt Jóns Geralds?
Smáfuglarnir eru gáttaðir á atburðum dagsins í versluninni Kosti í Kópavogi þar sem Jón Gerald kaupmaður selur matvöru.
Eini friðarspillirinn á Þingvöllum er Álfheiður Ingadóttir
Smáfuglarnir fylgjast vel með málefnum Þingvalla enda daglegir gestir í þjóðgarðinum. Þar hafa í gegnum árin mönnum og dýrum komið vel saman og friður verið einkennandi fyrir svæðið. Það breyttist þó nýverið þegar Álfheiður Ingadóttir tók við formennsku í Þingvallanefnd.
Hrægammapeningar Framsóknar koma beint úr ríkissjóði
Framsóknarflokkurinn ætlar í nafni ríkissjóðs að krefja erlenda kröfuhafa um hlut af eignum þeirra með góðu og illu og hafa nefnt 400 milljarða. Takist það, umræðunnar vega, fara peningarnir í ríkissjóð. Eftir það ætlar Framsóknarflokkurinn að færa þessa 400 milljarða til hóps útvalinna sem skulda vegna íbúðarkaupa. Ríkissjóður er nær gjaldþrota vegna skulda.
Allar árstekjur annars foreldris fara í skatta og opinber gjöld - hitt framfleytir fjölskyldunni
Smáfuglarnir detta við og við út tré sínu þegar þeir sjá tölur um sóun almannafjár og/eða nýja skatta sem vinstristjórn leggur á menn. Í morgun skrikaði þeim hins vegar fótur þegar við blasti skipting á útgjöldum heimilanna. 52% af útgjöldum meðal heimilis fara í skatta og opinber gjöld þegar allt er talið saman.
Ætla hægrimenn að kjósa guðfaðir vinstristjórnarinnar?
Smáfuglarnir eru hissa á mörgu. Til dæmis því að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins ætli sér að kjósa Framsókn og falla þar fyrir innantómum loforðum um að stela peningum af útlendingum til að leysa skuldavanda heimilanna. Hafa þeir sjálfstæðismenn gleymt því að Framsóknarflokkurinn er guðfaðir verstu ríkisstjórnar á Íslandi fyrr og síðar. Hafa þeir gleymt þessum orðum Sigmundar Davíðs?
Sigmundur lofaði eitt sinn 2.000 milljörðum
Smáfuglarnir hafa grúskað í gömlum fréttum og sjá þar að meira er um loforð Sigmundar Davíðs en efndir eða árangur.
Ásakar formann Framsóknarflokksins um ósannindi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásakar Sigmund Davíð um að birta ósannindi á vefsíðu sinni. Forsaga málsins er sú að Sigríður Dögg blaðamaður á Fréttatímanum tók viðtal við Sigmund Davíð þar sem hún ásamt ljósmyndara fóru saman í ísbíltúr á Þingvelli. Þegar viðtalið kom út, brást Sigmundur illa við og sagði blaðamenn hafa rangt eftir sér og taka hluti úr samhengi.
Smáfuglunum barst eftirfarandi: Framsóknarmaður og skattgreiðandi sátu á bar. Skattgreiðandinn þurfti á klósettið og bað framsóknarmanninn að passa veskið sitt á meðan. Þegar hann kom til baka voru allir á barnum komnir með þrjá drykki hver og hrópuðu þrefalt húrra fyrir framsóknarmanninum sem útdeildi drykkjum í miðri þvögunni.